Á grænni grein
Lestrarátak var haldið í Kelduskóla/Korpu nú í vor.
Allir bekkir skólans tóku þátt á sama tíma. Markmiðið er að lesa sem mest á þessum tíma til að auka lestrarfærni nemenda og glæða áhuga þeirra á bóklestri. Nemendur lásu bæði heima og í skóla.
Hver nemandi skráði á laufblað upplýsingar um lesna bók og síðan voru laufblöðin hengd upp á tré sem hafði verið komið fyrir á áberandi staði í skólanum. Hver árgangur var með sinn lit á laufblöðum. Umsjónarkennarar héldu utan um fjölda lesinna blaðsíðna.
Þær bækur sem nemendur máttu lesa:
1. bekkur: Hvaða bækur sem er og einnig voru foreldrar og kennarar hvattir til að lesa fyrir börnin og var sá lestur skráður.
2.– 3. bekkur: Máttu lesa hvaða bækur sem er.
4. – 5. bekkur: Máttu lesa bækur eftir íslenska höfunda. Þegar nemendur hafði lokið bók áttu þeir að finna út hvaðan af landinu viðkomandi höfundur væri og merkja það á landakort sem búið var að hengja upp í stofunni. Tengt námsefni í samfélagsfræði.
6. -7. bekkur: Máttu lesa bækur eftir norræna höfunda aðra en íslenska. Búið var að merkja þær bækur á skólasafninu til þess að auðvelda nemendum að finna bækur sem voru í boði. Þegar nemendur höfðu lesið bók og skrifað á laufblað upplýsingar um bókina þá límdu þeir fána viðkomandi höfundar á laufblaðið.
Hér er hægt að nálgast tvær gerðir af laufblöðum.