
Bókmenntir | Yngsta stig
Hér er að finna verkefni sem henta í vinnu með nemendur í 1. - 4. bekk.
Documents
B2
Date added: | 04/18/2012 |
Date modified: | 10/25/2012 |
Filesize: | Unknown |
Downloads: | 2389 |
Kennsluáætlun með bókinni B2 eftir Sigrúnu Eldjárn. Um leið og bókin er lesin er unnið skemmtilegt verkefni og nemendur taka þátt í lestrarátaki. Hér er að finna skráningarblað sem hægt er að nota með. Þegar þau eru ljósrituð eru tvö blöð sett á eitt og ljósritað báðum megin. Þannig myndast skráningarbók með fjórum blaðsíðum. Verkefni þetta er frá Heiðu Rúnarsdóttur kennara í Breiðagerðiskóla.
Emil í Kattholti
Date added: | 12/05/2017 |
Date modified: | 12/05/2017 |
Filesize: | Unknown |
Downloads: | 1782 |
Lokaverkefni í grunnskólakennarafræðum eftir þær Gerði Gautsdóttur og Þórunni Kjartansdóttur. Notað með sögunni um Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í 2. og 3. bekk. Emil í Kattholti verkefnahugmynd ()
Gott kvöld
Date added: | 11/26/2012 |
Date modified: | 11/26/2012 |
Filesize: | Unknown |
Downloads: | 2596 |
Á vef þjóðleikhússins er að finna þenna skemmtilega fræðlsupakka sem tengist sýningunni Gott kvöld eftir Áslaugu Jónsdóttir en sú sýning byggir á samnefndri bók.
Krókópókó
Date added: | 01/09/2014 |
Date modified: | 01/09/2014 |
Filesize: | Unknown |
Downloads: | 2324 |
Hér er á ferðinni lokaverkefni af Grunnskólabraut við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Tilgangur þessa verkefnis var að sýna fram á að hægt sé að nýta bókmenntir til kennslu í öðrum námsgreinum en íslensku. Bókin Krókópóko eftir Helgu Ágústsdóttur er lesin fyrir nemendur án þess að sýna myndirnar úr bókinni og unnið þannig með skilning, hljóðkerfisvitund, ímyndunarafl o.fl. Höfundar eru þær Ásta Kristín Ástráðsdóttir og Sandra Þórisdóttir.
Vala og vinir hennar
Date added: | 05/12/2012 |
Date modified: | 05/12/2012 |
Filesize: | Unknown |
Downloads: | 2917 |
Vinnubók með lesbókinni Vala og vinir hennar eftir Ingibjörgu Eiríksdóttur. Kennsluleiðbeiningarnar hefur Berglind Ósk Jóhannesdóttir þroskaþjálfi gert.